Við förum með bílinn í skoðun einu sinni á ári. Við pössum uppá að dekk séu góð og hæfi árstíðum þannig að við getum ekið stöðug við misjafnar aðstæður, förum á verkstæði ef viðvörunarljós kviknar.

Við pössum upp á bensínstöðuna því við viljum komast alla leið.

Við förum á verkstæði ef viðvörunarljós kveiknar eða eitthvað er ekki að virka til fulls því við viljum vera örugg og forðast kostnaðarsamar viðgerðir Kannski ættum við að hugsa um fjölskylduna og samböndin á líkan hátt þ.e taka stöðuna reglulega, vera vakandi fyrir líðan og velferð fjölskyldumeðlima, bregðast við og leita okkur aðstoðar ef viðvörunarljós kvikna.

Slíkt stuðlar að hamingju og gæti komið í veg fyrir sársaukafullar viðgerðir síðar meir.