Thelma Lind Smáradóttir

Greining og meðferð á sálrænum vanda hjá börnum
Kvíði
Félagsfælni
Þunglyndi
Lágt sjálfsmat
Sorg

Thelma Lind er barnasálfræðingur á Samskiptastöðinni. Hún útskrifaðist með BSc gráðu í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2018 og MSc gráðu í klínískri sálfræði árið 2020 og fékk starfsleyfi sama ár. Hún sinnir greiningu og meðferð við tilfinningavanda barna og unglinga og veitir ráðgjöf til foreldra. Samhliða starfi sínu hjá Samskiptastöðinni vinnur hún sem sálfræðingur á Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu þar sem hún sinnir greiningu og meðferð á sálrænum vanda fullorðinna. Thelma hefur því bæði reynslu af starfi sálfræðinga á sviði barna og fullorðinna.