Helga Lára Haarde

Helga Lára lauk BS námi í sálfræði við Háskóla Íslands árið 2009 og MS gráðu í félags- og vinnusálfræði frá sama skóla árið 2011. Hún hóf nám í klínískri sálfræði við Háskólann í Reykjavík árið 2021 og útskrifast vorið 2023.

Helga Lára hefur hefur langa starfsreynslu sem sérfræðingur í mannauðsmálum þar sem hún sinnti m.a. eineltis- og áreitnismálum. Einnig hefur hún starfað við háskólakennslu, rannsóknarstörf og umönnun barna og fatlaðra.

Helga Lára sinnir greiningu og meðferð á sálrænum vanda hjá fullorðnum og
ungmennum. Hún beitir fyrst og fremst aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) við greiningu og meðferð. Hún styðst við gagnreynd mælitæki til að mæla árangur meðferðar.