Sigrún Júlíusdóttir

  • Position :
    Félagsráðgjafi, fjölskyldufræðingur, einstaklingsþerapisti og handleiðari
  • Email :

Félagsráðgjafi, fjölskyldufræðingur, einstaklingsþerapisti og handleiðari
Einstaklingsmeðferð
Fjölskyldumeðferð
Parameðferð- og hjónabandsmeðferð
Uppeldisráðgjöf
Skilnaðarráðgjöf
Handleiðsla fagfólks og stjórnenda

Sigrún Júlíusdóttir hefur unnið meðferðarstarf með einstaklingum og fjölskyldum um áratuga skeið, á eigin stofu, Tengsl frá 1982 (http://sigjul.internet.is) samhliða kennslu og rannsóknum við Háskóla Íslands frá 1990. Hún hefur einnig skipulagt og kennt diplómaleiðir í handleiðslu í HÍ, og í fjölskyldumeðferð við Endurmenntunarstofnun HÍ. Rannsóknir hennar hafa m.a. beinst að velferð barna og fjölskyldna m.a. í skilnaðarmálum.

Sigrún útskrifaðist sem félagsráðgjafi, frá Háskólanum í Lundi, Svíþjóð árið 1970. lauk fil. kand. próf í félagsvísindum frá Háskólanum í Stokkhólmi, 1972; lauk klínísku framhaldsnámi, MSW, í hjóna-og fjölskyldumeðferð í Bandaríkjunum, frá University of Michigan, 1978; mótaði ásamt fleirum og stundaði nám í handleiðslufræðum og -tækni á vegum Geðdeildar Landsspítalans og Institutet i familjeterapi í Gautaborg, 1980-´85; lauk námi í einstaklingsmeðferð (leg. psykoterapeut) frá sálfræðideild Háskólans í Gautaborg, til löggildra meðferðarréttinda frá sænska Socialstyrelsen, 1989 lauk doktorsprófi í fjölskyldufræðum frá félagsráðgjafardeild Háskólans í Gautaborg.

Sigrún hefur leyfi í félagsráðgjöf frá íslenska heilbrigðisráðuneytinu frá 1975 og leyfi Landlæknis til að starfa sjálfstætt að meðferð/heilbrigðisþjónustu á stofu frá 1982.