María Rúnarsdóttir

Einstaklingsmeðferð
Fjölskyldumeðferð
Para/hjónameðferð
Sáttamiðlun
Samskiptavandi
Tengslavandi
Streita, álag og kulnun
Starfslok
Handleiðsla
Stjórnendahandleiðsla
Fræðsla og ráðgjöf um samskipti á vinnustöðum, mannauðsmál, vinnuvernd, ferla- og gæðastjórnun
Almenn verktaka í félagsráðgjöf

Yfir 20 ára starfsreynsla í velferðarþjónustu – víðtæk þekking á velferðarþjónustu, samningamálum, vinnumarkaðs- og starfsmannamálum og vinnuvernd.

María útskrifaðist sem félagsráðgjafi frá Háskóla Íslands árið 1998 með BA próf í uppeldis- og menntunarfræði. Hún er sáttamiðlari frá Sáttamiðlaraskólanum 2019 og hefur sótt fjölda námskeiða á sviði félagsráðgjafar, samningatækni, stjórnunar, stefnumótunar, verkefnastjórnunar, sáttamiðlunar, gæða- og ferlastjórnunar. María er í fjölskyldumeðferðarnámi á meistarastigi hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.

María er með starfsleyfi í félagsráðgjöf frá 1998 og leyfi Embætti landlæknis til að starfrækja heilbrigðisþjónustu frá 2019.