Íris Eik Ólafsdóttir

Parameðferð/ hjónabandsmeðferð
Trúnaðarbrestur í parsambandi/ framhjáhald
Ofbeldi í fjölskyldum
Sáttamiðlun
Faghandleiðsla og stjórnendaþjálfun
Fræðsla og ráðgjöf um samskipti á vinnustöðum, mannauðsmál, vinnuvernd, ferla- og gæðastjórnun

Almenn verktaka í félagsráðgjöf ​

Yfir 20 ára starfsreynsla á sviði velferðar- og réttarvörslukerfis bæði við meðferðar- og stjórnendastörf. Hún kennir réttarfélagsráðgjöf við HÍ og í diplómaleið í fjölskyldumeðferð við Endurmenntun HÍ. ​

Íris Eik útskrifaðist sem félagsráðgjafi frá Háskóla Íslands árið 2003 og sem fjölskyldufræðingur frá endurmenntun Háskóla Íslands árið 2018. Hún er einnig með meistaragráðu frá Háskóla Íslands í réttarfélagsráðgjöf frá árinu 2010 og framhaldsmenntun í opinberri stjórnsýslu frá sama skóla frá árinu 2011. Auk þess er hún sáttamiðlari frá Sáttamiðlaraskólanum frá árinu 2019. ​

Íris Eik er með eftirfarandi leyfi frá Embætti landlæknis: Starfsleyfi í félagsráðgjöf frá 2003, leyfi til að starfrækja heilbrigðisþjónustu frá 2014 og sérfræðileyfi í réttarfélagsráðgjöf frá 2018.