Guðrún Birna Ólafsdóttir

Einstaklingsmeðferð
Fjölskyldumeðferð
Parameðferð/ hjónabandsmeðferð
Uppeldisráðgjöf
Ofbeldi í fjölskyldum
Tengslavandi
Stjúpfjölskyldur
Áfallameðferð EMDR
Almenn verktaka í félagsráðgjöf
Guðrún Birna hefur unnið með fjölskyldum á annan áratug.

Hún útskrifaðist sem félagsráðgjafi frá Háskóla Íslands árið 2006 og sem fjölskyldufræðingur frá endurmenntun Háskóla Íslands árið 2013. Hún útskrifaðist frá Kennaraháskóla Íslands árið 2000. Auk þess lauk hún námi í EMDR meðferð árið 2019. Guðrún Birna hefur leyfi til að halda Circle of security foreldranámskeið.

Guðrún Birna er með eftirfarandi leyfi frá Embætti landlæknis: Starfsleyfi í félagsráðgjöf frá 2006 og leyfi til að starfrækja heilbrigðisþjónustu frá 2019.